Innskráning í Karellen
news

Agalota í Öskju

17. 09. 2017

Fyrsta lota ársins í kynjanámskrá Hjallastefnunnar er agalotan. Nú fer henni senn að ljúka en síðasta vikan af agalotunni er nú að hefast þar sem lotulykillinn er framkoma. Í þessari lotu eru R- reglurnar þrjár í hávegum hafðar, röð, regla og rútína. Við æfum okkur í almennri kurteisi svo sem að heilsast, kveðjast og bjóða góðan daginn ásamt því að ganga í fallegri röð og æfa okkur í umgengni við okkur sjálf, fólkið í kringum okkur og umhverfið.

© 2016 - Karellen