Innskráning í Karellen
news

Bókabíllinn

17. 09. 2018

Á hverjum föstudegi rennur Bókabíll Borgarbókasafnins í hlað hér við Öskju og Barnaskólann. Nemendur á öllum aldri eru mjög dugleg að nota bókabílinn. Nemendur í Barnaskólanum fara í bílinn og velja sér lestrarefni til að hafa í skólanum og kennarar geta tekið bækur til að styðja við námsefnið sem verið er að fara yfir. Við hér í Öskju höfum líka kíkt í bókabílinn sem kemur alltaf í hópatímanum eftir hádegi. Það er því tilvalið að kíkja í þangað með hópinn sinn til að fletta í bókum, hafa lestrarstund eða velja sér bók til að skoða saman í hópatíma síðar. Afskaplega notalegt finnst okkur.

© 2016 - Karellen