Innskráning í Karellen
news

Aðventukaffi í Öskju

19. 12. 2017

Nú á aðventunni buðu börnin í Öskju foreldrum sínum í piparkökukaffi á sínum kjarna. Börnin höfðu sjálf bakað piparkökur og buðu upp á ilmandi piparkökur og meðlæti. Söngstund var á hverjum kjarna þar sem börn, foreldrar og kennarar sungu saman. Gleðin skein úr litlum andlitum þegar fjölskyldumeðlimir birtust og gáfu sér tíma til að fylgjast með leikskólalífinu. Við óskum öllum gleðilegrar aðventu.

© 2016 - Karellen