Innskráning í Karellen
news

Foreldrasöngfundur.

30. 11. 2018

Að tengja heimili og skóla er okkur ofarlega í huga alla daga og það gerum við með fjölbreyttum hætti. Einn liður í þessu samstarfi er að bjóða foreldrum í heimsókn í Öskju og leyfa þeim að fá smá innsýn í daginn okkar. Í morgun buðum við foreldrum af Bláa kjarna að taka þátt í söngfundi með okkur sem var afskaplega skemmtilegt en foreldrum af öllum kjörnum verður boðið á söngfundi á næstunni. Takk fyrir komuna frábæru foreldrar.

© 2016 - Karellen