Innskráning í Karellen
news

Hveitidans í jákvæðnilotu

13. 02. 2019

Það er alltaf gaman að gera eitthvað óvenjulegt og skemmtilegt. Stúlkurnar á Græna kjarna fóru í hveitidans í hópatíma á dögunum með Möggu kennaranum sínum og skemmtu sér vel. Við leggjum mikla áherslu á að kennarinn sé virkur þátttakandi og mikilvæg fyrirmynd í öllum hópatímaverkefnum. Magga skellti sér að sjálfsögðu á kaf í hveitið með stúlkunum sínum. Að lokum tóku svo allar stúlkur virkan þátt í frágangi því það þurfti bæði að ryksuga og skúra eftir herlegheitin.

© 2016 - Karellen